Þekkingarnet Austurlands

Starfsfólk í leikskólum útskrifast af námskeiði Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 28 September 2009 16:09

starfsfolk_i_leikskolum
Mánudaginn 28.september lauk 70 kennslustunda námskeiði sem haldið var fyrir starfsfólk í leikskólum. Námskeiðið var haldið á Reyðarfirði, alls voru 23 þátttakendur skráðir á námskeiðið og luku 19 þeirra öllu námskeiðinu. 

Markmið námskeiðsins var að efla þátttakendur til að takast á við helstu viðfangsefni almennra starfa í leikskólum,styrkja faglega hæfni og jákvæð viðhorf til starfsins og eigin færni.

Námskeiðið er unnið eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er um að ræða samstarfsverkefni Sveitarfélagsins Fjarðabyggðar og Þekkingarnets Austurlands.

 
Námskeið í verkefnastjórnun Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 23 September 2009 13:13

Starfsmennt býður félagsmönnum sínum upp á 24ja stunda námskeið í verkefnastjórnun án endurgjalds. Námskeiðið er opið öðrum og fer fram í gegnum fjarfundabúnað á Egilsstöðum. Lágmarksþátttaka á hverjum fjarfundarstað eru 4 nemendur. Sjá frekari lýsingu hér.

 
ÞNA tekur þátt í vísindavöku RANNÍS Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 22 September 2009 12:12
Vísindavaka RANNÍS verður haldin föstudaginn 25.september  kl. 17:00 - 22:00  í Listasafni Reykjavíkur.  Markmið Vísindavökunnar er að kynna fólkið bak við rannsóknirnar og vekja athygli á fjölbreytni og mikilvægi vísindastarfs í landinu.  Þekkingarnet Austurlands tekur þátt í Vísindavöku í þetta skiptið og verður með kynningu á rannsóknatækifærum á Austurlandi.  Skarphéðinn Þórisson ætlar að fara með sem fulltrúi vísindamanna á Austurlandi.  Hann mun kynna rannsókn sína á ferðum hreindýra en hann hefur sett staðsetningartæki á nokkur hreindýr og skrásetur ferðalög þeirra.
 
Þrjú námskeið í fötlunarfræðum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 22 September 2009 09:42

Endurmenntun í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands býður upp á þrjú námskeið í fötlunarfræðum í vetur.

Lesa meira...
 
Máttur kvenna á Bifröst Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 02 September 2009 11:02

Máttur kvenna er 11 vikna fjarnám fyrir konur sem vilja bæta rekstrarþekkingu sína og efla tengslanetið.

Enn er tekið við skráningu á námskeiðið sem í haust er kennt í 10.sinn og hefst með vinnuhelgi á Bifröst 11.-12.september.  Engar forkröfur eru gerðar um fyrra nám.

Námskeiðið kostar 75.000 krónur.   Innifalið í gjaldinu er öll kennsla, námsbækur, gisting og fæði á tveimur vinnuhelgum.  Fræðslusjóðir flestra stéttarfélaga styrkja sína félagsmenn til námsins auk þess sem vinnumálastofnun hefur tekið þátt í kostnaði fyrir atvinnuleitendur. 

Hér er hægt að fá nánari upplýsingar um námið og skrá þátttöku.

 


Síða 21 af 32
Icelandic (IS)

Námskeið á haustönn 2010

Námskeið - yfirlit

Fjarnám haust 2010

fjarnam2010

Fréttaveita ÞNA

feed-image Fréttir frá ÞNA
moodle

Póstlisti ÞNA











Bæklingar

Námsvísir haustannar 2010

Fjarneminn hjá Þekkingarneti Austurlands 2010 - 2011
Hreindýraveiðar - Hagnýt ráð og leiðbeiningar
Þú ert hér  : Forsíða

Þekkingarnet Austurlands ses
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 470 3800
Fax: 470 3809

Þekkingarnet Austurlands
Búðareyri 1 (Fróðleiksmolinn)
730 Reyðarfirði
Sími: 470 3820

Þekkingarnet Austurlands ses
Hafnarbyggð 4
690 Vopnafirði
Sími:  470 3850

Þekkingarnet Austurlands ses
Egilsbraut 11 (Kreml)
740 Neskaupstað
Sími:  470 3830

Þekkingarnet Austurlands ses
Nýheimar, Litlubrú 2
780 Höfn í Hornafirði
Sími: 470 3840