|
Leiðsögunám á háskólastigi hjá Endurmenntun HÍ |
|
|
|
|
Föstudagur, 19 Júní 2009 11:50 |
|
Enn er tekið við umsóknum í Leiðsögunám á háskólastigi hjá Endurmenntun HÍ-einnig í boði í fjarnámi.
Í haust hefst aftur Leiðsögunám á háskólastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands en námsbrautin fór fyrst af stað síðastliðið haust og hefur fengið mjög góðar viðtökur. Þetta er tveggja missera nám sem hægt er að stunda samhliða starfi og er fyrir þá sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi. Námið er metið sem aukagrein með ferðamálafræði og í hugvísindadeild Háskóla Íslands.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Mánudagur, 08 Júní 2009 11:46 |
|
Þann 5. júní hófst námskeiðið Færni í ferðaþjónustu, sem er 60 kennsustunda námsleið sem hönnuð er sérstaklega með þarfið ferðaþjónustu í huga. Tilgangur námsins er að búa þátttakendur sem best undir störf í ört vaxandi atvinnugrein og er náminu ætlað að efla persónulega, faglega og almenna færni í að veita gæðaþjónustu og takast á við fjölbreytt úrlausnarefni ferðaþjónustunnar. 13 þátttakendur eru á námskeiðinu og koma frá fjórum vinnustöðum á Fljótsdalshéraði. Í fyrri hluta námskeiðsins var farið yfir grunnþætti þjónustu, vinnusiðferði og hlutverk starfsmanns, fjallað um gildi ferðaþjónustu og síðan fóru þátttakendur í vettvangsferð til að kynnast þeim ferðaþjónustuaðilum sem starfa á þessu svæði. Seinni hluti námskeiðsins fer fram dagana 10.,17. og 18. ágúst.

|
|
Hvað er í boði í fjarnámi? |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 27 Maí 2009 10:11 |
|
Enn er möguleiki að skrá sig í nám á næstu haustönn. Yfirlit yfir það sem er í boði í fjarnámi má finna undir tenglinum fjarnám hér fyrir ofan. Þaðan er hægt að fara á heimasíður hvers skóla fyrir sig til að kynna sér framboðið nánar. Starfsfólk ÞNA hvar sem er í fjórðungnum er reiðubúið að aðstoða við umsóknir og veitir frekari upplýsingar. Námsráðgjafar ÞNA eru Ragnhildur Jónsdóttir á Hornarfirði og Emil Björnsson á Egilsstöðum. |
|
Mánudagur, 18 Maí 2009 18:18 |
|
Kynningarfundir á fjarnámi frá háskólum og aðstoð við umsóknir verða á eftirtöldum stöðum: 20. maí Höfn - Í Nýheimum kl. 17:00 19. maí Djúpivogur - á Hótel Framtíð kl. 17:00 Vopnafjörður - Kaupvangur kl. 12:00 Reyðarfjörður - Fróðleiksmolinn (Starfsstöð ÞNA) kl. 16:00 Fáskrúðsfjörður - Grunnskólinn kl. 18:00 Seyðisfjörður - Seyðisfjarðarskóli kl. 20:00 20. maí Breiðdalsvík - Gamla Kaupfélagshúsið, fjarfundur kl. 12:00 Egilsstaðir - Vonarland kl. 12:00 Neskaupstaður - Skrifstofa AFLs Egilsbraut 11 kl. 17:00 |
|
Frumkvöðlanámskeið fyrir innflytjendur |
|
|
|
|
Mánudagur, 11 Maí 2009 12:25 |
|
Athugið - námskeiði er frestað um eina viku - hefst 23. maí Næstu þrjá laugardaga 16. - 30 maí verður haldið námskeið fyrir frumkvöðla af erlendum uppruna. Námskeiðið er styrkt af félagsmálaráðuneytinu og greiða þátttakendur aðeins kr. 9000 fyrir 24ja stunda námskeið. Leiðbeinendur tala mörg tungumál m.a. ensku, pólsku og rússnesku. Skráning fer fram hjá ÞNA. |
|
|
|
|
|
|
Síða 24 af 32 |