|
Þriðjudagur, 02 Desember 2008 10:38 |
|
Próf haustannarinnar eru byrjuð af fullum krafti. Yfir 300 próf verða haldin víða um Austurland í desember. Nú er í fyrsta sinn mögulegt fyrir háskólanema að taka próf á Seyðisfirði á vegum ÞNA og er það til mikilla bóta fyrir nemendur þar. |
|
|
Fólk án atvinnu - námskeið |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 26 Nóvember 2008 08:30 |
|
Á vegum ÞNA eru að byrja námskeið á dagvinnutíma sérstaklega ætluð þeim sem hafa verið að missa vinnuna, einnig er öllum sem tækifæri hafa til að stunda nám á dagvinnutíma velkomið að taka þátt. Upplýsingar og skráning á námskeiðin í síma 471 2838. Sköpum við samfélagið eða skapar samfélagið okkur, fimmtudaginn 27.nóv. kl. 14-16. Enskunámskeið á mánudögum og miðvikudögum kl. 10-12 Excel námskeið á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10-12 Einnig eru fyrirhuguð námskeiðin Villibráð er veislumatur og námskeið um GPS staðsetningartæki, ef næg þátttaka fæst |
|
Kynningarfundur um námsframboð |
|
|
|
|
Föstudagur, 21 Nóvember 2008 08:29 |
|
Næstkomandi mánudag, 24.nóvember kl. 13:00 verður kynningarfundur á því helsta sem í boði verður í endurmenntun og símenntun næstu vikur og mánuði. Fundurinn er hugsaður sem liður í aðgerðum vegna atvinnuleysis í efnahagsþrengingunum. Fundurinn er á vegum ÞNA, Afls starfsgreinafélags, VR, Fljótsdalshéraðs og Vinnumálstofnunar. |
|
Mánudagur, 10 Nóvember 2008 08:28 |
|
Námskeiðið Settu þér markmið, sem frestað var í haust verður haldið sem hér segir: Egilsstaðir 11.nóvember, Vopnafjörður 12. nóvember, Djúpivogur 13.nóvember og Hornafjörður 18.nóvember. Námskeiðið er haldið fyrir félagsmenn AFLS starfsgreinafélags. Ennþá er mögulegt að skrá sig í síma 471 2838. |
|
Dale Carnegie þjálfun á Egilsstöðum |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 05 Nóvember 2008 08:27 |
|
Sjálfstraust - samvinnuhæfni - árangur Kynning á Dale Carnegie þjálfun verður á Kvennakvöldinu í Valaskjálf laugardaginn 8. nóvember. Námskeið verður haldið 15.,16. og 17. nóvember á Egilsstöðum, ef næg þátttaka fæst. Markmið námskeiðsins: Takast á við flóknar áskoranir, byggja upp sjálfstraust, efla samvinnu, áhrifarík tjáning, minnka sjálfsgagnrýni, takast á við streitu, styrkja leiðtogahæfileika Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja ná fram því besta í fari sínu, verða sterkari leiðtogar og verðmætari starfsmenn. Nánari upplýsngar og skráning hjá Dale Carnegie www.dale.is og hjá starfsmönnum ÞNA. |
|
|
|
|
|
|
Síða 30 af 32 |