|
Akademísk vinnubrögð: Undirbúningur fyrir háskólanám |
|
|
|
|
Mánudagur, 14 Júní 2010 14:12 |
|
Námskeið frá Endurmenntun Háskóla Íslands - sent út í fjarfundi ef næg þátttaka fæst.
Veitt er þjálfun í vinnubrögðum og grundvallaraðferðum sem öllum er nauðsynlegt að tileinka sér í háskólanámi. Námskeiðið er ætlað fólki sem er að hefja háskólanám eða taka upp þráðinn eftir námshlé. Megináhersla er lögð á uppbyggingu og frágang ritgerða, framsöguerinda og rannsóknarverkefna, málfar og stíl, heimildanotkun og glósutækni. Þá verður þátttakendum leiðbeint um flutning talaðs máls. Að lokum er fjallað um gagnrýna hugsun og rökvísa framsetningu.
Kennt er: 4,5,10,11 og 12.ágúst kl. 16:15 - 19:00 (5 skipti)
Verð: 14800 kr.
Nánari upplýsingar og skráning á heimasíðu Endurmenntunar HÍ |
|
|
Próf í íslensku fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 09 Júní 2010 16:07 |
|
Miðvikudaginn 9. júní var haldið próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt í húsnæði ÞNA á Egilsstöðum.
Próftakar komu frá Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Reyðarfirði og Höfn og eru af 5 þjóðernum. Prófið er samræmt próf á vegum Námsmatsstofnunar og er haldið tvisvar á ári. Þetta er í annað sinn sem austfirskir umsækjendur geta tekið próf á heimaslóðum. Á myndinni má sjá hluta hópsins áður en prófið hófst.
|
|
Hraðlestrarnámskeið á Hornafirði 19-20. júní 2010 |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 08 Júní 2010 12:02 |
Slá tvær...nei, þrjár flugur í einu höggi
Nýttu tækifærið enn frekar með því að kíkja á - hina fullkomnu lærdómshelgi fyrir alla aðdáendur virkrar símenntunar. Hraðlestrarskólinn hefur á síðustu 32 árum byggt upp mikla reynslu af lestri, námi og námstækni. Ætlum við því að bjóða þér að taka frá eina helgi til að auðvelda þér að ná enn meiri árangri í námi - hvort sem þú ert að huga að námi eða ert í námi.
Ef þú vilt skrá þig á lærdómshelgi merktu þá við viðkomandi námskeið - hægt er að taka langa helgi eða skemmri helgi. Sjá frekari kynningu á námskeiðum, afsláttum hér http://www.h.is/sumar
Umsagnir nokkra nemenda á Akureyri um síðustu helgi:
"Ég bjóst síst við því að það væri hægt að sexfalda lestrarhraðann á 2 dögum. Synd að hafa fattað að sækja þetta námskeið svona seint." - Jóhanna Hildur, 19 ára nemi í MA
"Ég vissi ekkert við hverju ég átti að búast. Þetta var frábært og miklu betra en ég þorði að vona. Þetta á eftir að nýtast mér ævilangt." - Eva Sigurðardóttir, 16 ára framhaldsskólanemi
"Námskeiðið stóðst væntingar mínar til fulls. Ég hef á 2 dögum náð að þrefalda leshraðann. Hlakka til að nýta mér tæknina í lögfræðinni." - Anna, 21 árs Lögfræðinemi
"Mjög gott. Ég átti alls ekki von á að sjá svo mikinn árangur á svo stuttum tíma. Hélt í raun að ég hefði ágætan leshraða." - 51 árs skólastarfsmaður. |
|
Freyjuginning á Skriðuklaustri |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 03 Júní 2010 14:05 |
|
Christina Sunley kynnir bók sína Freyjuginningu.
Sunnudaginn 6.júní kl. 16 mun bandaríski rithöfundirinn Christina Sunley lesa úr bók sinni Freyjuginningu á Skriðuklaustri og segja frá tilurð hennar og tengslum sínum við Ísland og svara fyrirspurnum. Christina er af íslensku ættum, m.a. af Vefaraættinni úr Fljótsdal. Hún dvaldi fyrir fáum árum í gestaíbúðinni á Skriðuklaustri við bókarskrif. Afraksturinn er skáldsagan "The Tricking of Freya" sem kom út 2008. Sögusviðið er Íslendingaslóðir í Kanada en leikurinn berst einnig til Fljótsdalshéraðs.
Dagskráin fer fram á íslensku og ensku. Aðgangur er ókeypis og opið í kaffihlaðborð hjá Klausturkaffi. Sjá nánar um höfundinn og bókina á : http://www.christinasunley.com |
|
Myndaalbúm og miðlun stafrænna ljósmynda |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 01 Júní 2010 08:48 |
|
Námskeið í boði hjá Endurmenntun HÍ - aðeins í fjarfundi
Þriðjudagana 28.sept og 5.okt kl: 20:15 - 22:15
Vilt þú koma skipulagi á myndirnar þínar með rafrænu myndaalbúmi? Vilt þú fá tækifæri til að geyma myndasafnið þitt á öruggu svæði óháð þinni tölvu eða öðrum tækjabúnaði? Langar þig til að deila myndunum þínum með vinum og ættingjum á einfaldan og öruggan hátt? Á námskeiðinu kynnist þú þeim möguleikum sem flickr.com býður upp á.
Skráning fer fram á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum og hjá Endurmenntun í síma 525-4444.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Endurmenntunar |
|
|
|
|
|
|
Síða 4 af 32 |