|
Miðvikudagur, 26 Maí 2010 09:23 |
|
Þekkingarnetið vill vekja athygli á leiðsögunámi frá Endurmenntun HÍ sem kennt verður í fjarnámi. Námið tekur tvær annir og umsóknarfrestur er til 1. júní. Sjá nánar |
|
|
Útskrift af fjölvirkjanámskeiðum á Egilsstöðum |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 19 Maí 2010 11:02 |
|
Þriðjudaginn 18.maí fór fram útskrift af tveimur fjölvirkjanámskeiðum á Egilsstöðum. Annað námskeiðið var með áherslu á hönnun og hönnunarferlið en hitt námskeiðið var með áherslu á þróun vöru. Bæði námskeiðin voru 170 kennslustundir og lauk þeim með þátttöku í sýningunni List án landamæra, í Sláturhúsinu. Sýningin vakti mikla athygli enda var þar að finna mörg flott verkefni sem unnin hafa verið í vetur.
Starfsfólk ÞNA óskar þátttakendum til hamingju með árangurinn og vonandi eiga einhver verkefni sem unnin hafa verið á námskeiðunum í vetur eftir að verða að vandaðri söluvöru. |
|
Útskrift úr Grunnmenntaskólanum |
|
|
|
|
Föstudagur, 14 Maí 2010 15:10 |
|
Miðvikudaginn 12.maí fór fram útskrift úr Grunnmenntaskólanum sem hófst í september og lauk í apríl. Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustundir, ætlaður fullorðnu fólki og er tilgangurinn fyrst og fremst að vekja áhuga á frekara námi. Námið var fjarkennt til fjögurra staða á Austurlandi og það er metið til allt að 17 eininga í Menntaskólanum á Egilsstöðum, standist viðkomandi einstaklingur mat sem lagt er fyrir í námsgreinunum. 8 konur luku námskeiðinu en að auki tóku tvær þátt í einstökum greinum.
Óskum við þátttakendum innilega til hamingju með frábæran árangur. Á myndinni er hluti af hópnum á útskriftardaginn. |
|
Frestun á námskeiði fyrir sjúkraliða |
|
|
|
|
Föstudagur, 14 Maí 2010 15:03 |
|
Námskeiðinu, Líknandi meðferð, hefur verið frestað vegna truflana á innanlandsflugi. Ákveðið var að fresta námskeiðinu til haustsins og verða þátttakendur látnir vita þegar ný tímasetning liggur fyrir. |
|
Sumarnámskeið Hraðlestrarskólans |
|
|
|
|
Mánudagur, 10 Maí 2010 14:01 |
|
Hraðlestrarskólinn verður með sumaranámskeið á Egilsstöðum dagana 25.- 28. júní
.Lærdómshelgi Hraðlestrarskólans er hentug leið til að nýta helgina eins vel og hægt er - í stað þess að dreifa námskeiðum yfir sumarið þá ertu bara að taka frá eina stóra helgi fyrir þessa vinnu. Þú ert síðan að fá daglegar áminningar frá mér varðandi heimavinnu fyrstu 3 vikurnar, ásamt litlum gullmolum í pósti um hvað megi bæta og hvernig megi laga það- verkefni, æfingar, myndskeið (Hvernig á að lesa námsbók? - þar er hluti af námstæknipunktum á myndskeiðum) o.s.frv.
Kynning um námskeiðin má sjá á http://www.h.is/sumar
Skráning og námari upplýsingar hjá Hraðlestrarskólanum. |
|
|
|
|
|
|
Síða 5 af 32 |