|
|
|
Menning - færni - menntun |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 05 Maí 2010 09:20 |
|
Skapandi framtíð
Málþing á Eiðum miðvikud. 12.maí kl. 13-16
Dagskrá
| kl. 13:00 - 13:20 |
Hugvekja um hlutverk og gildi listsköpunar og listmenntunar. Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands |
| kl. 13:20 - 13:50 |
Skapandi nám í Bornholm í Danmörku. Getur háskólanám haft áhrif á byggðaþróun? Karin Larsen |
| kl. 13:50 - 14:20 |
Kaffi og listgjörningur framinn af Charles Ross |
| kl. 14:20 - 14:40 |
Hlutverk menningarmiðstöðva í þróun menningarstarfsemi á Austurlandi. Þórunn Eymundardóttir |
| kl. 14:40 - 15:00 |
Skálanes - háskólanám á landsbyggðinni. Ólafur Pétursson |
| kl. 15:00 - 15:15 |
Menning og vísindi, samstarf og sóknarfæri? Stefanía Kristinsdóttir og Signý Ormarsdóttir |
| kl. 15:15 - 16:00 |
Pallborð og umræður. |
Um morguninn kl. 11-12:30 verða aðalfundir Menningarráðs og ÞNA og sameiginlegur hádegisverður þeirra sem þá sækja.
Skráning hjá Þekkingarneti Austurlands
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 471 2838 í síðasta lagi 11.maí. |
|
Myndaalbúm og miðlun stafrænna ljósmynda |
|
|
|
|
Föstudagur, 30 Apríl 2010 14:04 |
|
Námskeið á vegum Endurmenntunar HÍ - aðeins í fjarfundi
Vilt þú koma skipulagi á myndirnar þínar með rafrænu myndaalbúmi? Viltu geyma myndasafnið þitt á öruggu svæði óháð þinni tölvu eða öðrum tækjabúnaði? Langar þig að deila myndunum þínum með vinum og ættingjum á einfaldan og öruggan hátt? Á námskeiðinu kynnist þú þeim möguleikum sem flickr.com býður upp á .
Kennari: Maríanna Friðjónsdóttir, sviðstjóri hjá Kvikmyndaskóla Íslands
Hvenær: Mán 17. og mið. 19.maí kl: 17:00 -19:00
Verð: 13.900 kr.
Skráning fer fram á heimasíðu Endurmenntunar HÍ - setja skal í athugasemd hvar menn vilja sækja fjarfund.
Nánari upplýsingar. |
|
Uppgjör, ábyrgð og endurmat |
|
|
|
|
Föstudagur, 30 Apríl 2010 13:49 |
|
Lærdómar af skýrslu rannsóknanefndar Alþingis.
Upptökur af opnum umræðufundum í Háskóla Íslands vikuna 26.-30.apríl eru aðgengilegar ásamt glærum fyrirlesara á vef Háskóla Íslands. Slóðin er: http://www.hi.is/skolinn/uppgjor_abyrgd_endumat. |
|
Sterkari starfsmaður á Reyðarfirði – útskrift |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 29 Apríl 2010 15:12 |
|
Miðvikudaginn 28. apríl var útskrift af námskeiðinu Sterkari starfsmaður sem haldið var á Reyðarfirði. Námskeiðið er 150 kennslustundir þar sem aðal áhersla er lögð á að þátttakendur efli sjálfstraust sitt og lífsleikni ásamt því að auka færni sína í tölvunotkun. Hópurinn sýndi mikla samheldni og allir tóku virkan þátt í því sem fram fór hverju sinni. Á myndinni eru 10 af þeim sem útskrifuðust en alls voru það 13 sem luku námskeiðinu.
|
|
|
|
|
|
|
Síða 6 af 32 |