Þekkingarnet Austurlands

Fjölvirkjar í fiskvinnslu - Hornafirði Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 29 Apríl 2010 09:27

fjolvirkjar-i-fiskvinnslu-031

Síðast liðinn þriðjudag útskrifuðust 13 lykilstarfsmenn Skinneyjar Þinganess úr 170 stunda námi sem bar yfirskriftina Fjölvirkjar í fiskvinnslu.

Námið hefur staðið yfir í allan vetur og voru námsþættirnir annars vegar lagaðir að þörfum fyrirtækisins um fagmennsku í matvælaiðnaði og hins vegar var markmið að efla persónulega og faglega hæfni starfsmannanna. Í náminu var m.a. fjallað um samvinnu og liðsheild, matvælaöryggi og meðhöndlun hráefnis, markaðs- og öryggismál og stefnumótun og stjórnun svo eitthvað sé nefnt. Þáttakendur unnu einnig fjögur hópverkefni sem miðuðu að umbótum innan fyrirtækisins og kynntu þeir verkefnin á útskriftardeginum.Eitt verkefnið fjallaði um að nýta betur lífrænan úrgang, annað um að flokka og endurnýta sorp og draga með því úr kostnaði við sorpurðun, þriðja verkefnið fjallaði um aðkomu fyrirtækisins í heimamarkaðnum og loks var unnið myndefni sem nýtist við að kynna starfsemi fiskvinnslunnar fyrir gestum þess.

Fjölvirkjanámið  er liður í mótvægisaðgerðaverkefni menntamálaráðuneytisins leiddu af Nýsköpunarmiðstöð á Hornafirði en Þekkingarnet Austurlands, Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu og Skinney Þinganes sáu um skipulag og framkvæmd námsins. Í framhaldi af þessari samvinnu hefur verið unnið að undirbúningi námsbrautar í matvælagreinum og fiskiðnaði við FAS.

 
Friðlýstar fornminjar á Héraði Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 28 Apríl 2010 19:21
Næstkomandi föstudag (30.apríl)  mun Inga Sóley Kristjönudóttir flytja framsögu  í málstofu á Vonarlandi undir heitinu "Friðlýstar fornminjar á Héraði".   Málstofan verður haldin í miðrými neðri hæðar í A-húsi á Vonarlandi og stendur frá 15:00 - 16:00.
 
Raunfærnimat iðngreina Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 28 Apríl 2010 17:14

Þekkingarnet Austurlands í samstarfi við IÐUNA, Verkmenntaskóla Austurlands og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins bjóða upp á raunfærnimat í helstu iðngreinum.  Lögð verður áhersla á iðngreinar sem kenndar eru við Verkmenntaskóla Austurlands þ.e. vélvirkjun, húsasmíði og rafvirkjun.  Auk þess verður boðið upp á raunfærnimat í öðrum iðngreinum sé óskað eftir því en þá þurfa þátttakendur að ljúka námi í öðrum verknámsskóla.

Raunfærnimat gengur út á að meta færni og reynslu þátttakenda til styttingar náms í viðkomandi iðngrein.  Þátttakendur þurfa að hafa starfað að minnsta kosti í 5 ár í faginu. 

Áhugasömum er bent á að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa ÞNA:  Einar Svein Árnason í síma 8440032 ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ), Ragnhildi Jónsdóttur á Hornafirði ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) eða Emil Björnsson ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) .

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is

Frestur til að skrá sig í raunfærnimat í vor er til 6.maí n.k.

 
Störf hjá ÞNA Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 27 Apríl 2010 16:21

ÞNA auglýsir tvö laus störf, verkefnastjóra í 100% starf á Reyðarfirði og verkefnastjóra í rannsóknar- og þróunarverkefni á Vopnafirði í 100%  starf, tímabundið í þrjá mánuði með möguleika á framtíðarráðningu. Umsóknarfrestur um báðar stöðurnar rennur út 30. apríl.

Nánari upplýsingar um stöðurnar:

Lesa meira...
 
Tínsla og meðhöndlun íslenskra lækningajurta í fjarfundi Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 23 Apríl 2010 15:43
Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir fjallar um grasalækningar og íslenskar lækningajurtir. Námskeiðið stendur yfir eina kvöldstund þann 29. apríl kl, 20:15. Nú þegar er ákveðið að námskeiðið verður sent út til Hornafjarðar og Neskaupstaðar. Fleiri staðir opnast eftir því sem skráningar berast. Sjá nánar hér 
 


Síða 7 af 32
Icelandic (IS)

Námskeið á haustönn 2010

Námskeið - yfirlit

Fjarnám haust 2010

fjarnam2010

Fréttaveita ÞNA

feed-image Fréttir frá ÞNA
moodle

Póstlisti ÞNA











Bæklingar

Námsvísir haustannar 2010

Fjarneminn hjá Þekkingarneti Austurlands 2010 - 2011
Hreindýraveiðar - Hagnýt ráð og leiðbeiningar
Þú ert hér  : Forsíða

Þekkingarnet Austurlands ses
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 470 3800
Fax: 470 3809

Þekkingarnet Austurlands
Búðareyri 1 (Fróðleiksmolinn)
730 Reyðarfirði
Sími: 470 3820

Þekkingarnet Austurlands ses
Hafnarbyggð 4
690 Vopnafirði
Sími:  470 3850

Þekkingarnet Austurlands ses
Egilsbraut 11 (Kreml)
740 Neskaupstað
Sími:  470 3830

Þekkingarnet Austurlands ses
Nýheimar, Litlubrú 2
780 Höfn í Hornafirði
Sími: 470 3840