Þekkingarnet Austurlands

Sterkari starfsmaður-útskrift Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 16 Apríl 2010 14:54

sterkari starfsmaur minnku Föstudaginn 16. apríl var útskrift af námskeiðinu Sterkari starfsmaður sem haldið var á Egilsstöðum. Námskeiðið er 150 kennslustundir þar sem aðal áhersla er lögð á að þátttakendur efli sjálfstraust sitt og lífsleikni ásamt því að auka færni sína í tölvunotkun. Frábær hópur þar sem allir tóku virkan þátt í því sem fram fór hverju sinni. Á myndinni er 8 útskriftarnemar en alls luku 11 einstaklingar þessu námskeiði.

 

 
Rannsóknanámssjóður Austurlands Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 13 Apríl 2010 16:48

Rannsóknanámssjóður Austurlands hefur verið stofnaður með framlagi frá Vaxtarsamningi Austurlands.  Markmið sjóðsins er að efla fræðastarf á Austurlandi með því að auðvelda nemendum að vinna skólaverkefni í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki fjórðungsins.  Styrkur er veittur samkvæmt kvittunum fyrir útlögðum kostnaði allt að 100.000 kr. eftir stærð verkefnis.  Með umsókn þarf að fylgja staðfesting á verkefninu frá skóla og samstarfsaðila. Umsóknarfrestur er til 15.júní.   

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Jónsdóttir ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) í síma:  477 1838.  Umsóknareyðublað er að finna á www.rannsoknatorg.is

 
Útskrift á Reyðarfirði Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 12 Apríl 2010 16:23

img_8463minnkuFöstudaginn 9. apríl lauk námskeiðinu Handverks-fjölvirkjar sem haldið var á Reyðarfiðri. Á námskeiðinu var áhersla lögð á þjálfun í handverksgreinunum, fatasaumi, silfursmíði og prjóni en einnig var töluverðum tíma varið í sjálfstyrkingu og samskipti.

 12 konur hófu nám en 8 luku öllu námskeiðinu og þökkum við þeim öllum kærlega fyrir þátttökuna.

 
Námskeið í ræktun mat- og kryddjurta Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 12 Apríl 2010 10:16

Laugardaginn 17.apríl kl: 10-13 í Þórsmörk - Listasmiðju Norðfjarðar

Á námskeiðinu verður fjallað um staðsetningu, mótun og uppbyggingu nytjajurtagarðsins.  Farið verður  í gegnum ræktun einstakra tegunda mat- og kryddjurta og hvernig uppskera megi ferskt salat allt sumarið.  Einnig verður fjallað um sáningu, forræktun og gróðursetningu, skiptiræktun og áburðargjöf ,  vörn gegn skaðvöldum matjurta, geymsluaðferðir og nýtingu uppskerunnar.

Verð:  4700 kr. - Námsgögn innifalin.

Upplýsingar veitir Anna Bjarnadóttir, garðyrkjufræðingur í síma: 8921958

 
Námskeið í Þórsmörk - Listasmiðju Norðfjarðar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 12 Apríl 2010 10:03

Á þriðjudögum býður Listasmiðja Norðfjarðar  í Þórsmörk  upp á 3 klst námskeið í þæfingu.  Þátttökugjald er 3000 kr. og er allt efni innifalið í verðinu.  (Þátttakendur þurfa þó að taka með sér handklæði).

Kennt verður þriðjudagana 13., 20., 27. apríl og 4.maí. kl: 18-21

Eftir það getur fólk mætt á mánudögum kl. 18-21 í Þórsmörk og unnið sjálfstætt. Hægt er að kaupa ull á staðnum.

Nánari upplýsingar veita Thea (s.848 1990) og Anna (892 1958). 

 


Síða 8 af 32
Icelandic (IS)

Námskeið á haustönn 2010

Námskeið - yfirlit

Fjarnám haust 2010

fjarnam2010

Fréttaveita ÞNA

feed-image Fréttir frá ÞNA
moodle

Póstlisti ÞNA











Bæklingar

Námsvísir haustannar 2010

Fjarneminn hjá Þekkingarneti Austurlands 2010 - 2011
Hreindýraveiðar - Hagnýt ráð og leiðbeiningar
Þú ert hér  : Forsíða

Þekkingarnet Austurlands ses
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 470 3800
Fax: 470 3809

Þekkingarnet Austurlands
Búðareyri 1 (Fróðleiksmolinn)
730 Reyðarfirði
Sími: 470 3820

Þekkingarnet Austurlands ses
Hafnarbyggð 4
690 Vopnafirði
Sími:  470 3850

Þekkingarnet Austurlands ses
Egilsbraut 11 (Kreml)
740 Neskaupstað
Sími:  470 3830

Þekkingarnet Austurlands ses
Nýheimar, Litlubrú 2
780 Höfn í Hornafirði
Sími: 470 3840