|
Stuðningur ESB við atvinnu- og byggðaþróun í aðildarríkjunum |
|
|
|
|
Föstudagur, 09 Apríl 2010 14:17 |
|
Ráðstefna í Salnum Kópavogi fimmtudaginn 15.apríl og föstudaginn 16.apríl.
Á ráðstefnunni verður fjallað um stuðning ESB við efnahags- og atvinnulíf í aðildarríkjunum og aðgerðir til að auka samkeppnishæfni svæða.
Ráðstefnan fer fram á ensku og verður send út á vefnum.
Nánari upplýsingar um skráningu og dagskrá er að finna á vef utanríkisráðuneytisins.
|
|
|
Framundan hjá Endurmenntun HÍ |
|
|
|
|
Mánudagur, 29 Mars 2010 11:40 |
|
Fjölbreytt námskeið eru í boði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Í mörgum tilfellum er hægt að fá þau send í fjarfundi ef tiltekinn fjöldi þátttakenda biður um það.
Meðal næstu námskeiða má nefna:
|
|
Fjölsótt ráðstefna hjá Þekkingarneti Austurlands |
|
|
|
|
Föstudagur, 26 Mars 2010 17:04 |
|
Milli 65 og 70 manns sóttu alþjóðlegu ráðstefnuna „Þekkingarnet Íslands? draumurinn um sjálfbært þekkingarsamfélag“ sem haldin var á Reyðarfirði þann 23. mars síðastliðinn. Til stóð að ráðstefnan hæfist kl. 09:30 en vegna veðurs þá þurfti að fresta henni til hádegis. Jafnframt var ákveðið að opna fyrir myndfundabúnað víða um land til að auðvelda þeim þátttöku sem ekki komust yfir land og heiðar vegna veðurs.
Markmið ráðstefnunnar var að kynna niðurstöður Net-University verkefnisins sem er Leonardo þekkingaryfirfærsluverkefni. Farið var yfir það hvernig auka mætti og samræma námsframboð í dreifnámi, þróa nám frá landsbyggðinni, efla símenntun eða byggja upp aðgengilegt og opið menntaumhverfi með það að markmiði að mæta þörfum nemenda og tryggja jafnrétti til náms óháð búsetu og félagslegri stöðu.
Mikill einhugur og almenn ánægja var með ráðstefnuna en nánari upplýsingar um Net-university verkefnið og ráðstefnuna má finna á www.nethaskolinn.is.
|
|
Umsóknarfrestur um námsheimsóknir 2010 - 2011 |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 18 Mars 2010 10:29 |
|
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB minnir á að umsóknarfrestur um námsheimsóknir fyrir tímabilið september 2010 - febrúar 2011 rennur út 31.mars 2010.
Seinni umsóknarfrestur ársins fyrir mars-júní 2011 er 15.október 2010.
Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins hefur umsjón með námsheimsóknum, en allar nánari upplýsingar um heimsóknirnar koma fram í yfirlitsriti sem CEDEFOP stofnunin í Grikklandi sér um að gefa út.
Umsóknir skal fylla út rafrænt, en útprentuðu eintaki skal skila til : Landskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins, Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar um heimsóknirnar fást hjá Ástu Sif Erlingsdóttur,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
, sími: 525 4227 |
|
Mánudagur, 15 Mars 2010 13:03 |
|
Um síðustu helgi voru haldin tvö silfursmíðanámskeið á Hornafirði. 27 nemendur skráðu sig og er komin biðlisti á áframhaldandi námskeið sem verður vonandi hægt að halda.
Byrjendur hönnuðu og smíðuðu hring en þeir sem voru að koma í annað skiptið smíðuðu skartgrip með stein í. Konur voru í miklum meirihluta enda einungis tveir karlmenn sem mættu. Glatt var á hjalla og hugmyndaflugið á fleygiferð. Mjög ólíkar hugmyndir komu frá hverjum og einum sem gerði námskeiðið litríkt og skemmtilegt.
Kennari á námskeiðinu var Þóranna Snorradóttir handmenntakennari frá Stöðvafirði.
|
|
|
|
|
|
|
Síða 9 af 32 |