Þekkingarnet Austurlands

Netháskóli Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 27 Janúar 2010 12:27

Símenntun fólks á vinnumarkaði felst í síauknum mæli í námi á háskólastigi, námi sem er sniðið að þörfum vinnandi fólks bæði í þéttbýli og dreifbýli.  Til að bregðast við þessum þörfum atvinnulífsins hafa löndin í kringum okkur þróað sérstaka umgjörð utan um dreifnám sem kallast oftast Netháskóli eða opinn háskóli.  Þessi umgjörð samanstendur af tækni á borð við vefgagnagrunna um nám og öflugt fjarkennsluumhverfi og nærþjónustu í námsverum.

Þekkingarnet Austurlands er verkefnisstjóri í verkefni um Netháskóla sem styrkt  er af  Leonardo da Vinci áætlun Evrópusambandsins.  Samstarfsaðilar í verkefninu eru Högskolan i Jönköping (Svíþjóð), University of Highlands and Islands (Skotland), Smartlabrador inc (Kanada), Endurmenntun HÍ, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykjavík.

Markmið verkefnisins eru að:

  • Þróa leiðir til að kynna framboð á háskólanámi og leiðir til að laga það að þörfum vinnandi fólks.
  • Gera háskólanám aðgengilegt þeim er búa á jaðarsvæðum sem og þeim er kjósa að skipuleggja nám sitt með vinnu.
  • Byggja upp vefgátt eða markaðstorg fyrir háskóla til að koma tilboðum sínum um dreifnám á framfæri.
  • Skapa samstarfsvettvang fyrir háskóla og símenntunarmiðstöðvar sem þjónusta nemendur í þeirra nærumhverfi.
  • Skapa umhverfi fyrir þekkingarsetur á landsbyggðinni til að byggja upp og þróa nám á háskólastigi.
  • Þróa aðferðir og stuðning við nemendur í dreifnámi.

Verkefnislok eru áætluð í maí 2010.

Nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins.

 

 

Námskeið á haustönn 2010

Námskeið - yfirlit

Fjarnám haust 2010

fjarnam2010
moodle

Bæklingar

Námsvísir haustannar 2010

Fjarneminn hjá Þekkingarneti Austurlands 2010 - 2011
Hreindýraveiðar - Hagnýt ráð og leiðbeiningar
Þú ert hér  : Forsíða Fjarnám Netháskóli

Þekkingarnet Austurlands ses
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 470 3800
Fax: 470 3809

Þekkingarnet Austurlands
Búðareyri 1 (Fróðleiksmolinn)
730 Reyðarfirði
Sími: 470 3820

Þekkingarnet Austurlands ses
Hafnarbyggð 4
690 Vopnafirði
Sími:  470 3850

Þekkingarnet Austurlands ses
Egilsbraut 11 (Kreml)
740 Neskaupstað
Sími:  470 3830

Þekkingarnet Austurlands ses
Nýheimar, Litlubrú 2
780 Höfn í Hornafirði
Sími: 470 3840