| Markaðssetning á netinu - námskeið |
|
|
|
| Föstudagur, 29 Janúar 2010 13:22 |
|
Þróunarfélag Austurlands og Þekkingarnet Austurlands í samvinnu við Útflutningsráð Íslands munu bjóða upp á námskeið í markaðssetningu á netinu byggt á samnefndri bók sem var að koma út. Kennarar eru Guðmundur Arnar, markaðsstjóri hjá Icelandair og Kristján Már hjá Nordic eMarketing. Um hvað snýst námskeiðið? Farið verður yfir helstu samskiptaleiðir netsins á hagnýtan hátt með áherslu á ferðaþjónustu og hvernig samskiptaleiðir netsins geta skapað miklar tekjur. Markmiðið er að þátttakendur öðlist þekkingu sem nýtist þeim strax í starfi. Kennslan byggir á bókinni „Markaðssetning á netinu“ en bókin er innifalin í þátttökugjaldi námskeiðsins. Námskeiðið stendur frá kl. 11:30 – 16:00 þann 13. febrúar nk. hjá Þekkingarneti Austurlands á Egilsstöðum. Verð fyrir námskeið og bók er 18.500kr. Skráning er hjá Þekkingarneti Austurlands á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 471 2838 fyrir 11. febrúar. Helstu þættir: Um bókina sem er innifalin í námskeiðinu: Bókin „ Markaðssetning á netinu“ hefur það að leiðarljósi að vera hagnýt verkfærakista fyrir íslenskt markaðsfólk sem er eða vill byrja að nota netið í sínu markaðsstarfi. Í henni er fjallað um allar helstu samskiptaleiðir netsins. Bókin er jafnframt full af nýjum innlendum og erlendum rannsóknum um notkun fólks á netinu og hvernig ná má hámarksárangri. Ennfremur eru í bókinni fjölmargar íslenskar dæmisögur og tölur sem íslenskt markaðsfólk getur nýtt sér í daglegu störfum. Í dag er allt markaðsstarf meira og minna unnið með netið í huga. Bókin kynnir nýjar áður óbirtar rannsóknir sem sýna hversu langt Íslendingar hafa náð í notkun netsins. Tækifæri íslenskra fyrirtækja eru því fjölmörg. Eftir námskeiðið og lestur bókarinnar ætti fólk að vera mun betur upplýst um: Fyrirlesarar og höfundar bókarinnar „Markaðssetning á netinu“ Guðmundur Arnar Guðmundsson er hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Hann hefur ritað fjölda greina um viðskipti og markaðsmál í tímarit og blöð á Íslandi og situr í stjórn ÍMARK, félags markaðsfólks á Íslandi. Hann hóf störf við markaðsmál hjá 365 ehf en flutti til Englands 2006 og starfaði þar hjá Icelandair sem markaðsstjóri breska sölusvæðisins. Nú starfar Guðmundur Arnar í markaðsdeild Icelandair á Íslandi og fer fyrir markaðsstarfinu á Íslandi, hann sér um markaðsrannsóknir fyrirtækisins ásamt því að koma að stefnumótandi uppbyggingu vörumerkisins Icelandair. Kristján Már Hauksson hefur komið víða við hann lærði rafeindavirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík, kerfisfræði við Tölvu og verkfræðiskólann og er með internet markaðsfræðigráðu frá University of British Columbia. Hann stofnaði Nordic eMarketing og starfar þar sem sviðsstjóri net- markaðssetningar. Þar sérhæfir hann sig í leitarvélamarkaðssetningu og net-almannatengslum (ePR – Online PR). Kristján Már stofnaði íslenska SEO/SEM samfélagið og skrifar reglulega á Multilingualsearch.com. Kristján hefur unnið við netlausnir síðan 1996 og leitarvélamarkaðssetningu frá 1999. Hann er vinsæll fyrirlesari um þessa nýju miðla jafnt innanlands sem utan og hefur haldið fjölmörg námskeið. |
Þekkingarnet Austurlands ses
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 470 3800
Fax: 470 3809
Þekkingarnet Austurlands
Búðareyri 1 (Fróðleiksmolinn)
730 Reyðarfirði
Sími: 470 3820
Þekkingarnet Austurlands ses
Hafnarbyggð 4
690 Vopnafirði
Sími: 470 3850
Þekkingarnet Austurlands ses
Egilsbraut 11 (Kreml)
740 Neskaupstað
Sími: 470 3830
Þekkingarnet Austurlands ses
Nýheimar, Litlubrú 2
780 Höfn í Hornafirði
Sími: 470 3840