Þekkingarnet Austurlands

Styrkur til rannsókna á sviði Evrópufræða Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 08 Febrúar 2010 13:21
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Samtök iðnaðarins veita styrki til rannsókna á sviði Evrópufræða.

Markmið verkefnisins er að gefa nemendum á meistarastigi tækifæri til að vinna að rannsóknum sem í senn standast ýtrustu fræðilegu kröfur og beina sjónum að hagnýtum og knýjandi spurningum sem íslenskt atvinnulíf og samfélag varðar um.
Styrkupphæðin miðast við úthlutun Nýsköpunarsjóðs námsmanna til þriggja mánaða, en það eru um það bil 420 þúsund krónur. Einungis nemendur sem eru að hefja vinnu við lokaverkefni á meistarastigi koma til greina sem styrkþegar enda sé rannsóknarefnið í raun lokaverkefni nemenda, að hluta til eða í heild sinni. Við úthlutun styrksins er horft til fræðilegs og hagnýts gildis verkefnisins, skýrleika rannsóknaráætlunarinnar og greinargerð um það hvernig verkefnið muni nýtast íslensku atvinnulífi og samfélagi. Styrkirnir veita þannig nemendum tækifæri til að tengja rannsóknarverkefni sín atvinnulífinu þannig að báðir aðilar hagnist.

Umsóknarfrestur er til 15. febrúar og úthlutunarnefnd ákveður úthlutun innan mánaðar þaðan í frá. Allar nánari upplýsingar um styrkinn má finna á vefsíðu Alþjóðamálastofnunar www.hi.is/ams
 

Námskeið á haustönn 2010

Námskeið - yfirlit

Fjarnám haust 2010

fjarnam2010
moodle

Bæklingar

Námsvísir haustannar 2010

Fjarneminn hjá Þekkingarneti Austurlands 2010 - 2011
Hreindýraveiðar - Hagnýt ráð og leiðbeiningar
Þú ert hér  : Forsíða

Þekkingarnet Austurlands ses
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 470 3800
Fax: 470 3809

Þekkingarnet Austurlands
Búðareyri 1 (Fróðleiksmolinn)
730 Reyðarfirði
Sími: 470 3820

Þekkingarnet Austurlands ses
Hafnarbyggð 4
690 Vopnafirði
Sími:  470 3850

Þekkingarnet Austurlands ses
Egilsbraut 11 (Kreml)
740 Neskaupstað
Sími:  470 3830

Þekkingarnet Austurlands ses
Nýheimar, Litlubrú 2
780 Höfn í Hornafirði
Sími: 470 3840