| Þjóðarvettvangur á Austurlandi - Icesave |
|
|
|
| Þriðjudagur, 23 Febrúar 2010 09:43 |
|
Byggt á aðferðum og gildum þjóðfundarins. Þekkingarnet Austurlands, Búðareyri 1 Reyðarfirði Laugardaginn 27.febrúar 2010 kl: 09:30 - 12:00 Út frá þrem stærstu gildum þjóðfundarins 2009 hefur verið myndaður vettvangur á netinu þar sem gefst tækifæri á að ræða brýn þjóðfélagsmál í smáum hópum hvar sem er á landinu undir einföldum og öguðum vinnureglum. Fyrsta málið sem tekið verður fyrir er Icesavemálið. Markmiðið er að fá fólk til að hittast í smáum hópum og ræða brýn málefni þannig að allir fái jafnt tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri eftir tilsettum leikreglum. Tilgangurinn er að mynda uppbyggilega og agaða umræðu um erfið og tilfinningarík þjóðfélagsmál. Í lokin kemur hópurinn sér saman um eina setningu sem verður birt á www.thjodarvettvangur.is þar sem allar setningar úr öðrum umræðuhópum verða birtar og aðgengilegar. Setningarnar munu endurspegla lausnamiðaðar áherslur útfrá umræðuefninu með mið af gildunum þremur: réttlæti, virðingu og heiðarleika. Nánari upplýsingar um Þjóðarvettvang má finna á www.thjodarvettvangur.is . Vettvangurinn var formlega opnaður laugardaginn 20.febrúar og verður opinn í eina viku til 27.febrúar.
|
Þekkingarnet Austurlands ses
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 470 3800
Fax: 470 3809
Þekkingarnet Austurlands
Búðareyri 1 (Fróðleiksmolinn)
730 Reyðarfirði
Sími: 470 3820
Þekkingarnet Austurlands ses
Hafnarbyggð 4
690 Vopnafirði
Sími: 470 3850
Þekkingarnet Austurlands ses
Egilsbraut 11 (Kreml)
740 Neskaupstað
Sími: 470 3830
Þekkingarnet Austurlands ses
Nýheimar, Litlubrú 2
780 Höfn í Hornafirði
Sími: 470 3840