| Hlutverk og markmið |
|
|
|
|
Þekkingarnet Austurlands er sjálfseignarstofnun, formlega stofnuð 13. júní 2006 á grunni Fræðslunets Austurlands sem stofnað var 30. október 1998. Starfssvæði er allt Austurland, frá Skeiðará í suðri að Langanesi í norðri. Verkefni Þekkingarnets Austurlands:
Þekkingarnet Austurland rekur Háskólanámssetur FNA á Egilsstöðum samkvæmt sérstökum samningi við Menntamálaráðuneytið. Auk þess tekur ÞNA þátt í rekstri námsvera á nokkrum stöðum á Austurlandi í samstarfi við framhaldsskóla og sveitarfélög. Þekkingarnet Austurlands er samstarfsvettvangur fræðslustofnana, atvinnulífs og sveitarfélaga. Það er hins vegar ekki skóli, heldur er það tengiliður milli þeirra aðila sem sinna formlegri háskólakennslu og þeirra sem bjóða upp á símenntun og fullorðinsfræðslu annars vegar og hins vegar einstaklinganna, fyrirtækja og stofnana á Austurlandi. Þekkinganet Austurlands kynnir, miðlar og skipuleggur nám sem einstaklingar og fyrirtæki í fjórðungnum kunna að þurfa og óska eftir hverju sinni. Það leggur á ráðin með faghópum ýmis konar sem vilja bæta við þekkingu sína, um lengra eða styttra nám, útbýr sérvalin námskeið eftir óskum og sér um undirbúning þeirra s.s. útvegun kennara, húsnæðis o.fl . Þekkingarnet Austurlands kemur á framfæri óskum íbúa Austurlands við samstarfsaðila sína og getur einnig haft frumkvæði að námsframboði. Þekkingarnet Austurlands stuðalar að kynningu á rannsóknastarfi og fræðimönnum, aðstoðar þekkingarsetur við uppbygginu á aðstöðu til rannsókna og stuðar að samvinnu fræðimanna á svæðinu og auknu rannsóknastarfi. |
Þekkingarnet Austurlands ses
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 470 3800
Fax: 470 3809
Þekkingarnet Austurlands
Búðareyri 1 (Fróðleiksmolinn)
730 Reyðarfirði
Sími: 470 3820
Þekkingarnet Austurlands ses
Hafnarbyggð 4
690 Vopnafirði
Sími: 470 3850
Þekkingarnet Austurlands ses
Egilsbraut 11 (Kreml)
740 Neskaupstað
Sími: 470 3830
Þekkingarnet Austurlands ses
Nýheimar, Litlubrú 2
780 Höfn í Hornafirði
Sími: 470 3840