|
Raunfærni er samanlögð færni sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi.
Raunfærni er aflað með formlegu námi í skólakerfinu og viðurkennt með útskrift eða prófskírteinum frá formlegum skólayfirvöldum. Óformlegt nám er færni sem aflað með námi utan hins formlega skólakerfis t.d. hjá fræðslumiðstöðvum eða með námskeiðum á vinnustað. Þessi færni er oft staðfest með skírteinum eða viðurkenningum um þátttöku. Formlaust nám er færni sem einstaklingur hefur öðlast í gegnum daglegar athafnir tengdar starfi, fjölskyldu og frítíma. Færni sem einstaklingur býr yfir en hefur ekki staðfestingu á að hafa tileinkað sér. Hvað er raunfærnimat? Raunfærnimat er staðfesting og mat á raunfærni einstaklings án tillits til hvar og hvernig hennar hefur verið aflað. Markmiðið er að einstaklingur fái viðurkennda raunfærni sem hann býr yfir þannig að hann þurfi ekki að sækja nám í því sem hann kann eða til að öðlast framgang í starfi. (Heimild: Rit Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins: Raunfærni – raunfærnimat). Umsjón með raunfærnimati ÞNA hafa Einar Sveinn Árnason og Ragnhildur Jónsdóttir og er áhugasömum bent á að hafa samband við þau til að fá frekari upplýsingar um raunfærnimatið.
|