| Skipulagsskrá fyrir Þekkingarnet Austurlands (ÞNA) ses |
|
|
|
|
1. gr. - Heiti, heimili og varnarþing Félagið er sjálfseignarstofnun sem stundar atvinnurekstur og heitir Þekkingarnet Austurlands ses, skammstafað ÞNA. Heimili þess og aðalstarfsstöð er að Tjarnarbraut 39e á Egilsstöðum. 2. gr. - Tilgangur Tilgangur ÞNA er að stuðla að fjölbreyttri uppbyggingu háskólanáms, símenntunar og rannsókna á Austurlandi, vera samstarfsvettvangur fyrir aðila er vinna að verkefnum á sviði rannsókna, háskóla- og símenntunar, fjölþjóðlegra samstarfsverkefna, nýsköpunar og þróunar. 3. gr. - Form og aðild Stofnendur sjálfseignarstofnunarinnar eru: Þróunarfélag Austurlands, kt. 461094-2529, AFL - Starfsgreinafélag Austurlands, kt. 560101-3090, Háskóli Íslands, kt. 600169-2039, Háskólinn á Akureyri, kt. 520687-1229, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, kt. 491087-2509, Kennaraháskóli Íslands, kt. 690169-2159, Landbúnaðarháskóli Íslands, kt. 411204-3590, Menntaskólinn á Egilsstöðum, kt. 610676-0579, Samband sveitarfélaga á Austurlandi, kt. 560276-0289, Verkmenntaskóli Austurlands, kt. 520286-1369, Viðskiptaháskólinn á Bifröst, kt. 550269-0239, Handverks- og Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað, kt. 640169-0959, Hólaskóli – Háskólinn á Hólum, kt. 500169-4359, Háskólasetrið á Hornafirði, kt. 600169-2039, Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, kt. 580687-1729, Frumkvöðlasetur Austurlands, kt. 560703-2950, Náttúrustofa Austurlands, kt. 461094-2529, Háskólinn í Reykjavík, kt. 621199-2699, Skógrækt ríkisins, kt. 590269-3449 og Héraðs- og Austurlandsskógar, kt. 600290-2749. Stofnframlag sjálfseignarstofnunarinnar er kr.1.500.000.- og greiðir hver stofnaðili kr. 75.000-. ÞNA er stofnað á grunni Fræðslunets Austurlands (FNA), sem er sjálfseignastofnun sem stundar ekki atvinnurekstur. Við stofnun ÞNA tekur ÞNA við allri starfsemi og skuldbindingum FNA, byggt á fyrirliggjandi ársskýrslum og ársreikningum, lokauppgjöri og lokaskýrslu stjórnar FNA. Aðilar að ÞNA geta orðið stofnanir, félög og fyrirtæki sem í rekstri sínum fást við rannsóknir, fræðslu, þróun eða annað þekkingarstarf og tveir þriðju hluti stofnenda samþykkir. Stofnunin ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og öðrum þeim eignum er hún kann að eignast síðar. Engin sérréttindi í stofnuninni tilheyra stofnendum hennar. 4. gr. – Ársfundur, faghópar og stjórn Ársfundur Þekkingarnets Austurlands er haldinn einu sinni á ári og fer hann með æðsta vald stofnunarinnar. Allir þeir sem eiga aðild að ÞNA eiga einn fulltrúa á ársfundi og einn til vara. Ársfundur kýs stjórn sem í umboði ársfundar mótar stefnu um rekstur þess, vinnur að markmiðum skv. 2. gr. samþykktanna og kemur fram fyrir hönd ÞNA. Stjórn Þekkingarnets Austurlands er kosin til þriggja ára í senn. Í stjórn ÞNA sitja sex fulltrúar. Einn fulltrúi er tilnefndur sameiginlega af Samtökum sveitarfélaga á Austurlandi og Þróunarfélagi Austurlands. Þrír fulltrúar eru tilnefndir úr faghópum, einn úr hverjum faghópi. Tveir fulltrúar eru kosnir af ársfundi. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Hún skal koma saman að minnsta kosti þrisvar á ári. Formanni stjórnar er skylt að boða til stjórnarfundar ef 1/3 hluti stjórnarmanna krefst þess og sama gildir um stofnaðila. Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar sækir fund. Afl atkvæða ræður afgreiðslu mála. Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda stofnunina. Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar veitir prókúrumboð fyrir stofnunina. Ársfundur kýs fulltrúa sína í þrjá faghópa, faghóp um háskólanám, faghóp um rannsóknir og faghóp um símenntun. Hver faghópur er skipaður til þriggja ára í senn og í honum sitja 3-7 fulltrúar er tengjast viðfangsefni hvers hóps. Hóparnir eru ráðgefandi og starfa með stjórn, framkvæmdastjóra og starfsmönnum Þekkingarnetsins að mótun verkefna og þróun á starfsemi. Gert er ráð fyrir að hver hópur haldi fundi að jafnaði fjórum sinnum á ári. Á þeim ársfundum sem kosið er í stjórn og faghópa skal stjórnin koma með tillögu fyrir ársfundinn að nýjum fulltrúum í stjórn og faghópa. Við skipun nýrrar stjórnar skulu að minnsta kosti tveir úr gömlu stjórninni sitja áfram. Halda skal fundargerðir á stjórnar- og ársfundum 5. gr. - Framkvæmdastjóri Stjórn ÞNA ræður framkvæmdastjóra og ákveður laun hans og starfskjör. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur félagsins. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð gagnvart stjórn og vinnur samkvæmt ráðningarsamningi og starfslýsingu, skipulagsskrá þessari og fyrirmælum stjórnar. Hann ber ábyrgð á fjármálum og reikningshaldi Þekkingarnetsins í umboði stjórnar og stofnaðila. Framkvæmdastjóri á rétt á að sitja stjórnar- og ársfundi og hefur þar málfrelsi og tillögurétt nema stjórn eða fulltrúaráð ákveði annað í einstökum tilvikum. 6. gr. - Ársfundur Ársfundur ÞNA skal haldinn á tímabilinu mars til júní ár hvert. Ársfundinn skal boða með tryggilegum hætti og að lágmarki með tíu daga fyrirvara. Dagskrá ársfundar skal vera eftirfarandi: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Afgreiðsla reikninga. 3. Fjárhagsáætlun 4. Kosning stjórnarmanna 5. Ákvörðun um þóknun til stjórnar 6. Tillögur um breytingar á skipulagsskrá og starfsháttum 7. Önnur mál 7. gr. - Fjármál Stofnfé ÞNA er kr. 1.500.000 sem stofnendur greiða með reiðufé. Tekjur ÞNA eru samningsbundin framlög aðila að netinu, opinber framlög, gjafir, styrkir og sjálfsaflafé. Sem sjálfseignarstofnun hefur ÞNA sjálfstæðan fjárhag og ber því eitt ábyrgð á skuldbindingum sínum. Starfsár og reikningsár Þekkingarnetsins er almanaksárið. Endurskoðaðir reikningar skulu sendir út með fundarboði ársfundar og síðan lagðir fyrir til afgreiðslu á ársfundi Þekkingarnetsins. Stjórn Þekkingarnetsins skal velja einn eða fleiri löggilta endurskoðendur, eða endurskoðendafélög, til að endurskoða reikninga stofnunarinnar fyrir hvert starfsár. Endurskoðendur má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna félagsins. Skulu þeir rannsaka reikninga stofnunarinnar fyrir hvert starfsár og eigi síðar en mánuði eftir samþykktir ársreikninga, þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs. Senda skal stjórnvaldi því er tekur við ársreikningum félaga ársreikning eða samstæðureikning stofnunarinnar ásamt skýrslu stjórnar, áritun endurskoðenda og upplýsingar um hvenær ársreikningurinn var samþykktur. Ef hagnaður verður af rekstri stofnunarinnar skal færa hann yfir á næsta reikningsár. Ef tap verður af rekstri á rekstri stofnunarinnar skal niðurgreiða það með fjárframlögum næsta árs. 8. gr. - Breytingar á skipulagsskrá Skipulagsskrá þessari má aðeins breyta á ársfundi ÞNA með samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða stofnaðila, sbr. og 36. gr. laga nr. 33/1999. 9. gr. - Slit eða sameining ÞNA verður aðeins slitið eða það sameinað annarri stofnun með ákvörðun skv. 36. gr. laga nr. 33/1999, lög um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, á þar til boðuðum fundi stofnaðila. Verði starfsemi ÞNA hætt og það lagt niður skal eigum þess varið til eflingar menntunar og rannsókna á Austurlandi. 10. gr. - Úrsögn Aðilar að ÞNA geta sagt sig úr því og skal beiðni þar að lútandi vera skrifleg og send til stjórnar. Úrsögn tekur gildi frá og með næsta ársfundi eftir að úrsagnarbeiðni berst stjórn. Stofnframlög og önnur framlög eða árgjöld ef innheimt hafa verið eru óafturkræf og aðilar geta ekki gert kröfu um hlutdeild í eignum Þekkingarnetsins við úrsögn. Skipulagsskrá þessi er samþykkt á stofnfundi ÞNA, Vonarlandi Egilsstöðum, 13. júní, 2006. |
Þekkingarnet Austurlands ses
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 470 3800
Fax: 470 3809
Þekkingarnet Austurlands
Búðareyri 1 (Fróðleiksmolinn)
730 Reyðarfirði
Sími: 470 3820
Þekkingarnet Austurlands ses
Hafnarbyggð 4
690 Vopnafirði
Sími: 470 3850
Þekkingarnet Austurlands ses
Egilsbraut 11 (Kreml)
740 Neskaupstað
Sími: 470 3830
Þekkingarnet Austurlands ses
Nýheimar, Litlubrú 2
780 Höfn í Hornafirði
Sími: 470 3840