|
Málþing á Fljótsdalshéraði um stjórnun þjóðgarða og friðlýstra svæða |
|
|
|
|
Mánudagur, 30 Ágúst 2010 09:00 |
|
11. - 12. október 2010
Vinnuhópur á vegum Vísindagarðsins ehf vinnur nú að undirbúningi málþings um stjórnun friðlýstra svæða. Frummælandi er Stephen McCool sem er alþjóðlega virtur sérfræðingur á sviði þjóðgarðastjórnunar og höfundur fjölda rita um málefnið. Auk hans munu taka til máls Íslenskir sérfræðingar.
Málþingið hefst á hádegi 11.október og verða fyrirlestrar þann dag. Þriðjudaginn 12.október verður farin vettvangsferð inn á Austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem umræðum verður haldið áfram í hópum.
Í tengslum við málþingið verður 13. og 14. október haldið námskeið/vinnustofa þar sem Stephen McCool verður aðal leiðbeinandinn. Meginumfjöllunarefni námskeiðsins er LAC (Limits of Acceptable Change) sem er þekkt aðferðafræði við skipulag og stjórnun friðlýstra svæða. Einnig verður fjallað um alþjóðlega ábyrgð okkar varðandi friðlýst svæði.
Námskeiðið hentar sérstaklega vel starfsmönnum friðlýstra svæða auk annarra sem láta sig málefnið varða.
|
|
|
Menning - færni - menntun |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 05 Maí 2010 09:20 |
|
Skapandi framtíð
Málþing á Eiðum miðvikud. 12.maí kl. 13-16
Dagskrá
| kl. 13:00 - 13:20 |
Hugvekja um hlutverk og gildi listsköpunar og listmenntunar. Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands |
| kl. 13:20 - 13:50 |
Skapandi nám í Bornholm í Danmörku. Getur háskólanám haft áhrif á byggðaþróun? Karin Larsen |
| kl. 13:50 - 14:20 |
Kaffi og listgjörningur framinn af Charles Ross |
| kl. 14:20 - 14:40 |
Hlutverk menningarmiðstöðva í þróun menningarstarfsemi á Austurlandi. Þórunn Eymundardóttir |
| kl. 14:40 - 15:00 |
Skálanes - háskólanám á landsbyggðinni. Ólafur Pétursson |
| kl. 15:00 - 15:15 |
Menning og vísindi, samstarf og sóknarfæri? Stefanía Kristinsdóttir og Signý Ormarsdóttir |
| kl. 15:15 - 16:00 |
Pallborð og umræður. |
Um morguninn kl. 11-12:30 verða aðalfundir Menningarráðs og ÞNA og sameiginlegur hádegisverður þeirra sem þá sækja.
Skráning hjá Þekkingarneti Austurlands
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 471 2838 í síðasta lagi 11.maí. |
|
Stuðningur ESB við atvinnu- og byggðaþróun í aðildarríkjunum |
|
|
|
|
Föstudagur, 09 Apríl 2010 14:17 |
|
Ráðstefna í Salnum Kópavogi fimmtudaginn 15.apríl og föstudaginn 16.apríl.
Á ráðstefnunni verður fjallað um stuðning ESB við efnahags- og atvinnulíf í aðildarríkjunum og aðgerðir til að auka samkeppnishæfni svæða.
Ráðstefnan fer fram á ensku og verður send út á vefnum.
Nánari upplýsingar um skráningu og dagskrá er að finna á vef utanríkisráðuneytisins.
|
|
Þriðjudagur, 23 Febrúar 2010 09:06 |
|
Draumurinn um sjálfbært þekkingarsamfélag.
Ráðstefna 23.mars 2010
Þekkingarnet Austurlands, Búðareyri 1 Reyðarfirði kl: 9:30
Markmið ráðstefnunnar er að kynna niðurstöður úr þekkingaryfirfærsluverkefninu „Net-University“ þar sem fram koma leiðir í átt að samræmdu dreifnámsframboði og stoðþjónustu sem tryggir jafnrétti til náms. Einnig eru kynnt dæmi um staðbundið háskólanám á jaðarsvæðum og áhrif þess á byggðaþróun. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.nethaskolinn.is.
Ráðstefnan er öllum opin en ráðstefnugjald er kr. 2.000 en innifalið í því eru léttar veitingar á ráðstefnunni og rútuferðir frá og til Egilsstaða. Skráningu lauk föstudagurinn 19. mars.
|
|
Lesa meira...
|
|
Dagur menntunar í ferðaþjónustu |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 16 Febrúar 2010 18:09 |
|
Samtök ferðaþjónustunnar halda fund 25.febrúar 2010 kl. 13:30-17:00 á Grand Hótel Reykjavík. Á fundinum verður fjallað um fræðslu og símenntun starfsfólks í ferðaþjónustu. Ekkert þátttökugjald er innheimt en tilkynna ber þátttöku í síma 5118000 eða með tölvupósti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Nánari upplýsingar má finna hér. |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 2 |