|
Framundan hjá Endurmenntun HÍ |
|
|
|
|
Mánudagur, 09 Ágúst 2010 14:25 |
|
Fjölbreytt námskeið eru í boði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Í mörgum tilfellum er hægt að fá þau send í fjarfundi ef tiltekinn fjöldi þátttakenda biður um það. Almennt er ekki auglýst sérstaklega að námskeið sé í boði í fjarfundi, en áhugasömum bent á að hafa samband við næstu fræðslumiðstöð og kanna hvort mögulegt er að sækja námskeiðið í fjarfundi.
Meðal næstu námskeiða hjá Endurmenntun má nefna:
|
|
|
Leiðsögunám á háskólastigi |
|
|
|
|
Mánudagur, 09 Ágúst 2010 13:42 |
|
Enn eru laus pláss í leiðsögunám á Háskólastigi á vegum Endurmenntunar HÍ. Námsbrautin er ætluð þeim sem hyggjast starfa sem leiðsögumenn á Íslandi. Námið hefst í ágúst 2010 og stendur til loka júní 2011. Það býðst hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Endurmenntunar HÍ. |
|
Myndaalbúm og miðlun stafrænna ljósmynda |
|
|
|
|
Mánudagur, 09 Ágúst 2010 10:29 |
|
Námskeið í boði hjá Endurmenntun HÍ - aðeins í fjarfundi
Þriðjudagana 28.sept og 5.okt kl: 20:15 - 22:15
Á námskeiðinu verður skoðað flickr.com og vinnuumhverfi, ókeypis og áskriftarreikningar. Kennt verður að setja upp flickr, hlaða upp myndum, skilgreina þær og setja lykilorð. Á námskeiðinu eru einnig kynnt ókeypis verkfæri til myndvinnslu og aðrir myndabankar eins og Picasa nefndir til sögunnar.
Kennari: Maríanna Friðjónsdóttir, sviðsstjóri hjá Kvikmyndaskóla íslands
Verð: 14.900 kr.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Endurmenntunar eða í síma 525 4444 |
|
Nám við Símenntun Háskólans á Akureyri |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 28 Júlí 2010 15:38 |
|
Símenntun Háskólans á Akureyri býður upp á eftirfarandi námsbrautir samhliða vinnu á haustönn 2010.
- Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu - hefst í október og lýkur í febrúar - kennt 1-1,5 daga í mánuði (ekki kennt í desember)
- Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun - 24 ECTS nám á grunnstigi háskóla. Kennt verður tvö vikutímabil á haust- og vormisserum en verkefnavinna og tölvusamskipti þess á milli.
- Markaðssetning vöru og þjónustu - Kennt eitt síðdegi í viku á haustmisseri, einnig í boði í fjarkennslu.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Símenntunar |
|
Verkefnastjórnun í fjarnámi frá Opna Háskólanum |
|
|
|
|
Föstudagur, 25 Júní 2010 11:22 |
|
Opni háskólinn býður upp á hagnýta námsbraut í verkefnastjórnun í fjarnámi. Námið hentar einstaklingum sem fást við eða hafa áhuga á verkefnastjórnun, hvort heldur sem er stór eða smá verkefni. Námið hentar einnig þeim sem stýra minni fyrirtækjum eða framleiðslueiningum innan fyrirtækja.
Nánari upplýsingar og skráning hér.
|
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 5 |